Mötuneyti

Matseðill mánaðarins - nóvember
Mötuneyti er rekið við skólann og býðst nemendum heitur matur í mötuneyti skólans fyrir 381 kr. og einnig býðst nemendum mjólkuráskrift fyrir 40 kr. og ávaxtaáskrift að morgni fyrir 89 kr. á dag.
Hádegisverður nemenda er sem hér segir: 1. og 3.- 5. bekkur kl.11:30 -12:00, 2., 4. og 6. bekkur kl. 11:50-12:20, 7. bekkur kl 12:30 – 13:00 og 8.-10.bekkur kl.12:10-12:40. Stuðningsfulltrúar annast gæslu nemenda í matartímum.
Máltíðir eru seldar í áskriftarformi og þarf að greiða fyrir heilan mánuð í senn. Skráning fer fram í gegnum: Mín Árborg https://ibuagatt.arborg.is/.
Greiðslur eru innheimtar með gíróseðli.